Geta nú skilið við „Partygate“

Forsætisráðherra Bretlands, Boris Johnson, á fundi í dag með ríkisstjórn …
Forsætisráðherra Bretlands, Boris Johnson, á fundi í dag með ríkisstjórn sinni í Downing stræti tíu í London í Englandi. AFP/Leon Neal

„Takk all­ir fyr­ir ykk­ar góðu störf í gær. Dag­ur­inn var mjög mik­il­væg­ur því við get­um nú skilið við umræðuna sem and­stæðing­ar okk­ar vilja tala um,“ sagði Bor­is John­sons, for­sæt­is­ráðherra Bret­lands, við hóp ráðherra sinna í dag.

Ekki eru all­ir sam­mála þess­um orðum for­sæt­is­ráðherr­ans sem sum­ir vilja meina að umboð hans til að stjórna land­inu standi höll­um fæti.

Van­traust­stil­laga gegn John­son var felld í gær en 148 at­kvæði voru greidd með til­lög­unni en 211 gegn henni. Hann seg­ir niður­stöðuna vera „af­ger­andi“.

Til­lag­an var sett fram af 54 þing­mönn­um Íhalds­flokks­ins í kjöl­far hneyksl­is­mála í tengsl­um við veislu­höld í Down­ingstræti á meðan strang­ar sótt­varn­a­regl­ur voru í gangi vegna kór­ónu­veirunn­ar. Málið er gjarn­an nefnt „Partyga­te“ í Bretlandi.

Bor­is Johns­son lof­ar tryggð rík­is­stjórn­ar sinn­ar og heit­ir að halda ótrauður áfram vinnu sinni.

mbl.is
Fleira áhugavert

Erlent »

Fleira áhugavert