Afar lítill munur er á fylgi flokki Emmanuels Macrons Frakklandsforseta og bandalagi þriggja vinstriflokka í fyrstu umferð frönsku þingkosninganna sem fóru fram í gær.
Bandalag vinstri flokkanna er leitt af Jean-Luc Mélenchon.
Talið er að bandalag vinstriflokka fái 25,6%atkvæða en miðjubandalag Macron 25,2% atkvæða. Kosningaþátttaka var ekki nema 47% og hefur aldrei verið minni.
Úthlutun þingsæta fer eftir fylgi flokka í einstaka héröðum. Nái enginn hreinum meirihluta í fyrri umferð er kosið á milli tveggja í seinni umferð að viku liðinni.
Eins og staðan er núna virðist miðjubandalag forsetans fá á bilinu 255 til 295 þingseti. 289 þingsæti þarf til að ná hreinum meirihluta.