Að minnsta kosti eitt þúsund manns hafa fundist látnir eftir jarðskjálftann sem skók Afganistan í nótt.
„Talan er að hækka,“ sagði Mohamad Amin Huzaifa, yfirmaður upplýsinga- og menningardeildar héraðsins Paktika, sem fór einna verst út úr skjálftanum.
Hann bætti við að viðbragðsaðilar væru að leita að fólki í rústum bygginga í óða önn.
Skjálftinn mældist 5,9 að stærð. Fyrr í morgun greindu yfirvöld í Afganistan frá því að 600 manns hefðu slasast.