Maðurinn sem myrti fimm manns vopnaður hnífum, boga og örvum í Noregi í fyrra hefur verið dæmdur ósakhæfur og gert að sæta öryggisgæslu á viðeigandi geðheilbrigðisstofnun.
Espen Andersen Bråthen, 38 ára Dani sem býr í Noregi, réðst að fólki inni í stórmarkaði í Kongsberg og fyrir utan hann með boga og örvum. Í kjölfarið stakk hann fimm manns til bana með hnífi.
Bæði verjendur og saksóknari í dómsmáli Bråthen töluðu fyrir því að ekki væri hægt að sýna fram á sakhæfi hans vegna geðsjúkdóma og að hann yrði ekki vistaður í fangelsi vegna þessa.
Þrír sérfræðingar komust að þeirri niðurstöðu að maðurinn væri haldinn ofsóknaræði.
Bråthen lýsti yfir sekt sinni í rétti í síðasta mánuði.