Hæstiréttur Bandaríkjanna hefur gert hörmuleg mistök og tekið burt stjórnarskrárvarinn rétt Bandaríkjamanna. Dagurinn í dag er sorgardagur fyrir bæði landið og réttinn. Þetta kom fram í máli Joe Bidens Bandaríkjaforseta þegar hann ávarpaði þjóðina rétt í þessu.
Tilefnið var dómur Hæstaréttar Bandaríkjanna sem féll í dag en með honum var rétturinn til þungunarrofs í landinu afnuminn og nærri hálfrar aldar gömlu dómafordæmi snúið við, sem fólst í niðurstöðu réttarins í máli Roe gegn Wade árið 1973.
Dómurinn hefur þá þýðingu að einstök ríki geta sjálf valið að leyfa eða leggja bann við þungunarrofi.
Forsetinn var harðorður í ávarpinu og sagði niðurstöðu réttarins stefna heilsu og lífi kvenna í hættu. Taldi hann afnám réttar til þungunarrofs vera afleiðingu af öfgafullri hugmyndafræði.
Dómurinn hefur vakið mikla reiði en niðurstaðan var engu að síður viðbúin, þar sem gögnum var lekið í fjölmiðla í síðasta mánuði þar sem fram kom að fyrirhugað væri að heimila bann við þungunarrofi.
Biden hvatti mótmælendur til að mótmæla friðsamlega.
Happening now: President Biden delivers remarks on the Supreme Court decision on Dobbs v. Jackson Women's Health Organization to overturn Roe v. Wade. https://t.co/GBWJiYfg3U
— The White House (@WhiteHouse) June 24, 2022