Tala þeirra sem létust í verslunarmiðstöð í borginni Krementsjúk Úkraínu í gær heldur áfram að hækka. Rússnesku flugskeyti var skotið þangað í gær með þeim afleiðingum að 18, í það minnsta, létust. Þá eru 59 særðir.
G7-ríkin segja að árásin hafi verið stríðsglæpur. Þá hafa leiðtogar þeirra heitið því að Vladimír Pútín Rússlandsforseti og aðrir sem beri ábyrgð á árásinni muni verða dregnir til ábyrgðar.
„Árásir á almenna borgara eru stríðsglæpir,“ segir í sameiginlegri yfirlýsingu leiðtoga G-7 ríkjanna. Þeir fordæma þessa „viðbjóðslegu árás.“