Þrír frambjóðendur Repúblikanaflokksins í Bandaríkjunum hafa nú notað skotárásina í verslunarmiðstöðinni Field's í Kaupmannahöfn sem rök gegn byssulöggjöf.
Þessir þrír frambjóðendur hafa allir tjáð sig á samfélagsmiðlinum Twitter í kjölfar skotárásarinnar. Allar færslur þeirra snúað að því að skotárásin í Danmörku, þar sem byssur eru bannaðar, sé sönnun þess efnis að byssulöggjöf í Bandaríkjunum eigi ekki eftir að draga úr tíðum skotárásum þar í landi.
Lavern Spicer sem býður sig fram fyrir hönd Repúblikanaflokksins í Flórída-ríki fyrir þingkosningarnar í Bandaríkjunum 2024 tjáði sig til dæmis í færslu sinni á Twitter. „Skotárás í Kaupmannahöfn í Danmörku þar sem byssur eru bannaðar? Vá, ég get ekki beðið eftir því að vinstrið reyni að útskýra hvernig það gerðist.“
Shooting in Copenhagen Denmark where guns are BANNED?
— Lavern Spicer🇺🇸🇺🇸🇺🇸 (@lavern_spicer) July 3, 2022
Oooooh child I can’t wait for the Left to explain how that happened!
Þá segir Irene Armendariz-Jackson sem býður sig fram fyrir repúblikana í Texas-ríki „skotárás þar sem er nánast ómögulegt að nálgast byssu fyrir almenning afsannar öll sjónarmið vinstrisins um byssur.“
A shooting at a mall in Copenhagen, where guns are practically impossible to own for the general public, disproves every single Leftist talking point on guns.
— Irene Armendariz-Jackson For Congress (@ArmendarizDis16) July 3, 2022
Willie J. Montague sem býður sig einnig fram fyrir repúblikana í Flórída segist biðja fyrir Kaupmannahöfn og vinstri sinnuðum flokkum. „Ég bið fyrir fólkinu í Kaupmannahöfn. Ég bið einnig svo að vinstrið vakni og sjái að ekki er komið í veg fyrir skotárásir með byssulöggjöf,“ segir í færslu Montague.
Praying for the people of Copenhagen, Denmark.
— Dr. Willie J. Montague (@RepMontague) July 3, 2022
Also praying the Left wakes up and realizes that mass shootings are not prevented by gun laws.
Denmark makes it nearly impossible to get a gun, yet a mass shooting just happened there.
Þess má þó geta að um er að ræða fyrstu skotárásina í Danmörku í mörg ár en í Bandaríkjunum er skotárás daglegt brauð. Á hverjum degi eru 321 manns skotin í Bandaríkjunum samkvæmt tölfræði frá 2015 til 2019.