Verðbólga mældist 78,6% í Tyrklandi í júní að því er fram kemur í tölum tyrknesku hagstofunnar. Verðbólgan hefur ekki mælst meiri í 24 ár.
Óopinberar tölur í Tyrklandi benda aftur á móti til þess að verðhækkun í landinu sé í raun tvöfalt hærri en opinber gögn gefi til kynna.
Verðbólgan var 15% í byrjun síðasta árs en Recep Tayyip Erdogan, forseti Tyrklands, lét seðlabankann þar í landi lækka stýrivexti á meðan verðbólga jókst. Forsetinn neitar hefðbundnum hagfræðikenningum og segir að hærri stýrivextir ýti undir verðbólgu.
Fjármálaráðherra Tyrklands, Nureddin Nebati, lofaði á föstudaginn að almennt verðlag í landinu myndi lækka í desember.