Bandaríkin segjast harma útgöngu Rússa úr Alþjóðlegu geimstöðinni (ISS) og segja fréttirnar hafa komið sér á óvart.
„Þetta er óheppileg þróun í ljósi þeirrar mikilvægu vísindalegu vinnu sem fer fram á ISS og vegna hins dýrmæta samstarfs geimferðastofnana okkar í gegnum árin og sérstaklega í ljósi endurnýjaðs samkomulags okkar um samstarf í geimflugi,“ sagði upplýsingafulltrúi bandaríska utanríkisráðuneytisins, Ned Price.
„Mér skilst að yfirlýsingin hafi komið okkur á óvart,“ sagði hann við blaðamenn.
Forstjóri ISS á vegum NASA, Robyn Gatens, sagði bandarísku geimstöðina ekki enn hafa fengið formlega tilkynningu frá Rússum um útgönguna.
Spurð hvort hún vildi að samstarfi Rússa og Bandaríkjamanna lyki, svaraði hún: „Nei, alls ekki.“
„Þeir hafa reynst góðir samstarfsfélagar, eins og aðrir samstarfsfélagar okkar, og við viljum halda samstarfinu áfram svo Alþjóðlega geimstöðin getið unnið út áratuginn.“
Júrí Borisov, nýlega skipaður yfirmaður Geimvísindastofnunar Rússlands (Roscosmos), tjáði Vladimír Pútín Rússlandsforseta í dag að Rússland myndi segja sig úr ISS eftir árið 2024. Pútin svaraði: „Gott.“
„Auðvitað munum við uppfylla allar skyldur okkar við samstarfsfélaga okkar en ákvörðunin um að yfirgefa stöðina eftir árið 2024 hefur verið tekin,“ er haft eftir Borisov.