Yfirvöld í Þýskalandi hafa gripið til ýmissa ráða í viðleitni til að draga úr orkunotkun þjóðarinnar vegna hótana Rússlands um að skerða enn frekar afhendingu gass til landsins.
Slökkt hefur verið á ljósum sem lýsa upp sögulegar byggingar og minnisvarða í höfuðborginni Berlín og munu yfir 200 kennileiti standa í myrkrinu að næturlagi á næstu fjórum vikum, þar á meðal ráðhúsið og ríkisóperuhúsið.
þá hafa borgaryfirvöld í Hannover tilkynnt að einungis verði boðið upp á kalt vatn í sturtunum í almenningssundlaugum og -íþróttamiðstöðvum.
„Í ljósi stríðsins og hótana Rússa um skerðingu á orkuafhendingu, er mikilvægt að við förum eins sparlega með orkuna okkar og mögulegt er,“ sagði Bettina Jarasch, yfirmaður umhverfismála borgarinnar, í dag.
Sagði hún skilaboðin eiga við um alla, almenna neytendur, opinberar stofnanir og stóriðnaiðnaðinn.
Rússneski orkurisinn Gazprom hyggst draga úr útflutningi gass til Evrópuríkja en eins og greint hefur verið frá hefur fyrirtækið nú þegar minnkað orkuafhendingu til Evrópuríkja töluvert. Í byrjun júlí hafði til að mynda engu rússnesku gasi verið dreift til Þýskalands í gegnum Nord Stream-gasleiðsluna í tíu daga í röð.
Orkusparnaðarátak er hafið í Þýskalandi ekki síður vegna himinhás verðlags á gasi vegna stríðsins í Úkraínu. Evrópusambandið samþykkti fyrr í vikunni að minnka notkun á rússnesku gasi í öllum sambandsríkjum.
Hafa þjóðverjar heitið því að draga úr notkun loftkælingar, efla almenningssamgöngur og að hvetja fólk til að nota sturtuhausa sem spara orku.
Áður en stríðið í Úkraínu hófst keypti Þýskaland 55% af jarðgasi sínu af Rússlandi. Það hlutfall hefur nú lækkað talsvert, eða niður í 35%, en þrátt fyrir það eru Þjóðverjar enn talsvert háðir Rússlandi þegar kemur að þessum viðskiptum.