Breytingartillaga um þungunarrof felld í Kansas

Stuðningsfólk réttar til þungunarrofs fagnar niðurstöðunum í Kansas.
Stuðningsfólk réttar til þungunarrofs fagnar niðurstöðunum í Kansas. AFP/Dave Kaup

Kjósendur í Kansas ríki í Bandaríkjunum höfnuðu að fella úr gildi lagaákvæði sem tryggir rétt til þungunarrofs. Hefði breytingartillagan verið samþykkt gæti það hafa leitt til strangari lagasetningar eða jafnvel banns við þungunarrofi.

Þetta er fyrsta stóra kosningin sem tekur á þessu málefni síðan að Hæstiréttur Bandaríkjanna kvað upp úr­sk­urð í máli Dobbs gegn Jackson Women‘s Health Org­an­izati­on, sem sló því föstu að kon­ur hefðu ekki stjórn­ar­skrár­var­inn rétt til þung­un­ar­rofs.

Með þessu hnekkti dóm­ur­inn hinni frægu niður­stöðu í máli Roe gegn Wade frá ár­inu 1973 og Casey frá ár­inu 1992 sem viður­kenndu fyrr­greind­an rétt.

Forseti Bandaríkjanna Joe Biden fagnaði niðurstöðunum í Kansas með tísti: „Í kvöld beittu íbúar Kansas rödd sinni til þess að vernda rétt kvenna til að velja og hafa aðgang að heilbrigðisþjónustu sem tengist frjósemi.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert