Utanríkisráðherra Kína, Wang Yi, lýsti því yfir í dag að Kína ætlaði sér að refsa þeim sem hafa „móðgað ríkið“. Yfirlýsingin barst í kjölfar þess að Nancy Pelosi, forseti fulltrúadeildar Bandaríkjaþings, heimsótti Taívan í gær.
Yfirvöld í Kína hafa verið afar ósátt með heimsóknina og telja hana vera inngrip í innanríkismál landsins. „Þetta er algjör farsi. Bandaríkin eru að brjóta gegn fullveldi Kína undir fölskum formerkjum lýðræðis. Þeir sem að móðga Kína verður refsað,“ sagði Wang í dag.
Eftir að Pelosi lenti í Taívan hóf Kína heræfingar á hafsvæði í kringum Taívan. Jafnframt vöruðu þeir sendiherra Bandaríkjanna í Kína við alvarlegum afleiðingum.
Pelosi er æðsti kjörni bandaríski embættismaðurinn til að heimsækja Taívan í 25 ár. Tsai Ingwen, forseti Taívan þakkaði Pelosi kærlega fyrir heimsóknina á viðburði sem var haldinn í Taipei, höfuðborg Taívan.
„Taívan mun ekki draga sig í hlé þrátt fyrir þessar hótanir og aukna hervæðingu Kína,“ sagði Ingwen.