Teymi skipað Úkraínumönnum, Rússum og eftirlitsaðilum frá Sameinuðu þjóðunum, þar á meðal frá Tyrklandi, hefur lokið skoðun sinni á fyrsta farmi af korni sem hefur verið fluttur frá Úkraínu frá því að Rússar réðust inn í Úkraínu í byrjun febrúar. Skoðunin tók innan við 90 mínútur.
Skoðunin í Istanbúl um borð á skipinu Razoni frá Síerra Leóne var ákveðin prófraun til þess að sjá hversu vel gengi að framfylgja þeim fyrstu samningum sem undirritaðir hafa verið af hálfu Rússlands og Úkraínu eftir að stríðið hófst.
Skipið sigldi sérstaka leið framhjá tundurduflunum í Svartahafi frá Ódessu til Tyrklands.
Razoni mun flytja um 26.000 tonn af korni frá Úkraínu til Líbanon, þangað sem meira en 80% af innfluttu hveiti kemur frá Úkraínu og Rússlandi.
Fulltrúar Rússlands og Úkraínu undirrituðu 22. júlí tímamótasamning við Sameinuðu þjóðirnar og Tyrkland um að hefja útflutning á korni á ný.
Vonast er til að samningurinn dragi úr alþjóðlegri matvælakreppu og lækki verð á korni en hindrun á útflutningi korns frá Úkraínu hefur valdið því að verð á meðal annars brauði, pasta, matarolíu og áburði hefur hækkað í verði.
Razoni yfirgaf suðurhluta hafnarinnar í Ódessa í Úkraínu snemma morguns á mánudaginn.