Alls eru 67 slasaðir eftir að elding kveikti í olíutanki í borginni Matanzas í Kúbu. Þá er sautján eintaklinga saknað, flestir þeirra slökkviliðsmenn.
Eldurinn dreifði sér frá olíutankinum yfir í annan tank og svífur nú svart reykský yfir borginni. Um 800 manns hefur verið gert að yfirgefa svæðið.
Forsætisráðherra landsins greindi frá því á Twitter að yfirvöld ynnu nú að því að koma í veg fyrir að eldurinn myndi breiðast út enn frekar.
Nos encontramos en el Partido Provincial de #Matanzas, de conjunto con autoridades de la provincia y el país, evaluando daños y tomando medidas para evitar la propagación del incendio provocado por las explosiones en la Zona Industrial.#FuerzaMatanzas pic.twitter.com/NM4a6v6L6b
— Manuel Marrero Cruz (@MMarreroCruz) August 6, 2022