Tólf pólskir ríkisborgarar létust og þrjátíu aðrir slösuðust þegar rúta sem var á leiðinni til Zagreb, höfuðborgar Króatíu, fór út af veginum og hafnaði í skurði.
Átján af þeim þrjátíu sem slösuðust eru í alvarlegu ástandi.
Samkvæmt upplýsingum frá innanríkisráðuneyti Króatíu er rútan frá Póllandi.
Þá er talið að farþegarnir séu hópur pílagríma sem var á leiðinni til bæjarins Medjugorje í Bosníu og Hersegóvínu.