Alls hafa 31 Palestínumenn látið lífið í átökunum sem geisa nú á Gaza-svæðinu. Meðal þeirra látnu eru sex börn og tveir háttsettir einstaklingar innan vígsamtakanna Íslamskt jíhad ( e. Palestinian Islamic Jihad).
BBC greinir frá.
Átökin sem geisa nú á Gaza-svæðinu eru þau hörðustu í eitt ár.
Palestínumenn segja fleiri en 200 þeirra manna hafa særst í átökunum og saka Ísraeli um árásargirni.
Ísraelar segja Palestínumenn hafa skotið hátt í 600 eldflaugum og sprengjuvörpum á Ísrael síðan á föstudag. Segjast þeir hafa gripið til hernaðaraðgerða vegna mikillar ógnnar. Hefur ísraelski herinn varað við því að aðgerðin, sem hefur hlotið viðurnefnið Dagrenning (e. Breaking Dawn), geti staðið yfir í heila viku.