Yfirvöld í Rússlandi hafa staðfest að sprengingar hafi orðið í grennd við flugstöð rússneska hersins við borgina Novófedórivka á Krímskaga.
Að sögn sjónarvotta heyrðust háværar sprengingar koma frá svæði í grennd við flugstöðina og í kjölfarið reis upp svartur reykmökkur.
Rússneska varnarmálaráðuneytið segir engan hafa slasast.
Samkvæmt heimildum Reuters heyrðust að minnsta kosti tólf sprengingar um klukkan 15.30 að staðartíma í dag. Þrjár voru nokkuð stórar og fylgdu þeim mikill reykur og blossar.
Fréttin uppfærð klukkan 15.20
Samkvæmt yfirlýsingu frá rússneska varnarmálaráðuneytinu urðu sprengingarnar í skotfærageymslu á svæðinu sem sprakk í loft upp.
Ferðamenn, staddir á strönd nálægt Krímskaga, náðu sprengingunum á myndskeið: