Tvö flutningaskip hlaðin korni lögðu úr höfn í Úkraínu í dag. Skipin sigldu frá Tsjornómorsk-höfn með samanlagt 70 þúsund tonn af landbúnaðarvörum um borð, samkvæmt yfirlýsingu frá úkraínska innviðaráðuneytinu.
Þar sagði einnig að skipin tvö væru annars vegar á leið til Tyrklands með ríflega fimm þúsund tonn af varningi, og hins vegar á leið til Suður-Kóreu með 65 þúsund tonn af korni.
Alls hafa 12 skip haldið af stað úr þremur mismunandi höfnum í Úkraínu við Svartahafið eftir að samkomulag náðist um útflutning á korni milli Rússlands og Úkraínu. Sameinuðu þjóðirnar og Tyrkland leiddu viðræðurnar.
Stöðva þurfti útflutning á korni frá Úkraínu vegna stríðsins í landinu. Vonast er til að samningurinn dragi úr alþjóðlegri matvælakreppu og lækki verð á korni en hindrun á útflutningi korns frá Úkraínu hefur valdið því að verð á meðal annars brauði, pasta, matarolíu og áburði hefur hækkað.