Hreinlætis- og lækningavöruframleiðandinn Johnson & Johnson mun hætta að framleiða og selja talkúm barnapúður. Varan hefur verið seld í meira en 130 ár.
BBC greinir frá því að tvö ár eru síðan fyrirtækið hætti að selja barnapúðrið í Bandaríkjunum eftir að þúsundir kvenna höfðuð mál gegn fyrirtækinu. Telja konurnar að talkúmið í barnapúðrinu hafi verið asbestmengað og því valdið krabbameini í eggjastokkum.
Johnson & Johnson hefur ítrekað sagt að fjölmargar óháðar rannsóknir sýni að öruggt sé að nota barnapúðrið.
Í yfirlýsingu sagði að afstaða fyrirtækisins hafi ekki breyst þrátt fyrir að hætt væri að selja talkúm barnapúðrið.
„Óháðar rannsóknir gerðar af sérfræðingum sýna að talkúm barnapúðrið er öruggt, innheldur ekki asbest og veldur ekki krabbameini.“
Barnapúður sem fyrirtækið mun framvegis selja inniheldur maíssterkju og er nú þegar selt í fjölmörgum ríkjum.
Talkúm er steinefni sem finnst í leirkenndum jarðvegi og er sótt í námur neðanjarðar. Það er mýksta þekkta steinefnið og þykir einkar nytsamlegt í framleiðslu á ýmiss konar neysluvöru og iðnaðarvarningi. Vandinn er hins vegar sá að asbest finnst gjarnan á svipuðum slóðum í jarðveginum og agnir úr því geta borist í talkúmið. Það er því hætta á krossmengun, að sögn jarðfræðinga.
Talkúm er ekki bara notað í barnapúður, heldur einnig fjölmargar snyrtivörur, eins og varaliti, maskara, andlitspúður, augnskugga og farða.