Evrópusambandið hefur lýst yfir sérstökum áhyggjum vegna versnandi stöðu kvenna í ríki talíbana í Afganistan. Yfirlýsing þessi var gefin út í kjölfar harkalegra viðbragða stjórnvalda þar í landi, við kröfugöngu afganskra kvenna í gær.
Hermenn talíbana hleyptu skotum upp í loftið og börðu þátttakendur í kröfugöngunni, sem bar yfirskriftina: „Brauð, vinna, frelsi.“ Einhverjar konur voru eltar inn í verslanir í grenndinni þar sem þær voru barðar með rifflum.
„Evrópusambandið hefur sérstakar áhyggjur af örlögum afganskra kvenna og stúlkna, sem hafa fengið að kynnast frelsi, mannréttindum og aðgangi að grunnþjónustu á borð við menntun, en eru nú sviptar því öllu með kerfisbundnum hætti.“
Þá minnir Evrópusambandið á að stjórnvöld í Afganistan verði að virða alþjóðlegar skuldbindingar sínar, sem viðurkennd sjálfstætt ríki. Í því felist skylda til þess að virða og tryggja efnahagsleg, félagsleg, menningarleg og stjórnmálaleg réttindi, sem og grundvallar mannréttindi. Þá megi stjórnvöld ekki útiloka tiltekinn hóp frá samfélagslegri þátttöku.
Í yfirlýsingunni áréttar Evrópusambandið jafnframt að Afganistan skuli ekki stilla sér upp sem ógn við annað ríki, og vísar til þeirra skuldbindinga sem Afganistan hefur gengist undir í gegnum öryggisráð Sameinuðu þjóðanna.