Skoska lögreglan rannsakar nú hótun sem rithöfundinum J.K. Rowling barst eftir að hún lýsti yfir stuðningi við rithöfundinn Salman Rushdie sem varð fyrir stunguárás á föstudag.
Rowling deildi skjáskotum af skilaboðum sem hún fékk þar sem segir: „Ekki hafa áhyggjur, þú ert næst“.
BBC greinir frá því að sami Twitter-notandi hafi hyllt manninn sem réðst á Rushdie. Aðgangurinn er skráður í Pakistan og er búið að fjarlægja tístið.
Í tísti á föstudag sagðist Rowling harma árásina og vona að Rushdie myndi ná sér.
Talsmaður skosku lögreglunnar staðfesti að verið væri að rannsaka hótunina.