Taívan og Bandaríkin hefja formlegar viðræður um tvíhliða viðskiptasamband sín á milli.
Fyrsti hluti viðræðnanna fer fram á næstu vikum, eða fyrrihluta haustsins, að sögn talsmanns bandaríska viðskiptaráðuneytisins.
Verða þá tekin fyrir málefni á borð við afnám hafta, stafræn viðskipti og innleiðingu staðla sem stuðla gegn spillingu. Þetta kemur fram í frétt BBC.