Maður, sem var fluttur særður á sjúkrahús í kjölfar skotárásar í Emporia-verslunarmiðstöðinni í Malmö í Svíþjóð í dag, er nú látinn. Kona sem særðist einnig í árásinni er enn á sjúkrahúsi.
Lögreglan í Malmö sagðist vera búin að handtaka árásarmanninn og telur ekki að um hryðjuverk hafi verið að ræða heldur „einangrað atvik tengt hópum glæpamanna“.
Auður Elín Sigurðardóttir, starfsmaður í verslun á fyrstu hæð í verslunarmiðstöðinni, heyrði fjóra til fimm skothvelli skömmu áður en fólk kom hljóðandi inn í verslunina til hennar síðdegis í dag.