Börnum á Afríkuhorninu og í Sahel bíður dauðinn einn vegna alvarlegrar vannæringar og vatnsborinna sjúkdóma ef ekkert er að gert. UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, varar við þessu í dag í tilefni af viku vatnsins sem nú stendur yfir.
„Sagan sýnir að þegar við glímum við hátt hlutfall alvarlegrar bráðavannæringar ofan á banvæna faraldra á borð við kóleru og niðurgangspestir þá eykst dánartíðni barna verulega. Þegar hreint vatn er ekki til staðar eða óöruggt aukast ógnir sem steðja að börnum margfalt,“ segir Catherine Russell, framkvæmdastjóri UNICEF, í tilkynningu. „Um allt Afríkuhorn og Sahel eru milljónir barna aðeins einum sjúkdómi frá stórslysi.“
Frá því í febrúar síðastliðnum til júlí hefur fjöldi fólks án öruggs aðgengis að hreinu vatni aukist verulega, eða úr 9,5 milljónum í 16,2 milljónir á þurrkasvæðum Eþíópíu, Kenía og Sómalíu.
Í Búrkína Fasó, Tjad, Malí, Níger og Nígeríu auka þurrkar, átök og ótryggt ástand mjög á vatnsöryggi þessara ríkja. Líf og velferð 40 milljóna barna eru undir. Hvergi deyja fleiri börn vegna mengaðs vatns og skorts á hreinlætisaðstöðu en í Sahel, samkvæmt nýjustu tölum Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO).
Flestir íbúar Afríkuhornsins reiða sig á vatnssendingar en á svæðunum þar sem staðan er verst hafa fjölskyldur ekki lengur efni á vatninu.
Í Sómalíu hefur geisað faraldur niðurgangs og kóleru á öllum þurrkasvæðunum, en vannærð börn eru ellefu sinnum líklegri til að deyja vegna vatnsborinna sjúkdóma en vel nærð börn. 8.200 tilfelli frá janúar til júní er tvöfalt fleiri tilfelli en á sama tímabili í fyrra. Tveir þriðju hlutar þessara tilfella eru börn undir fimm ára.
Frá júní í fyrra til júní í ár hafa UNICEF og samstarfsaðilar meðhöndlað 1,2 milljónir tilfella af niðurgangi hjá börnum undir fimm ára aldri á verstu þurrkasvæðum Eþíópíu, Afar, Sómalíu og Oromia. UNICEF er á vettvangi á öllum þessum hamfarasvæðum að veita lífsbjargandi aðstoð.
Í tilkynningunni biðlar UNICEF til þjóðarleiðtoga, almennings og alþjóðasamfélagsins til að tryggja fjármagn svo hægt sé að mæta þeirri mannúðarkrísu sem nú geisar sem og að tryggja langtímauppbyggingu til að rjúfa vítahring neyðar í þessum heimshluta.
UNICEF á Íslandi hefur undanfarið staðið fyrir neyðarsöfnun vegna vannæringar og hamfaraþurrka á svæðinu sem ógna lífi milljóna barna.
Sendu SMS-ið NEYD í númerið 1900 til að styrkja söfnunina um 1.900 kr.
Hægt er að leggja frjáls framlög inn á reikning 701-26-102015 kt. 481203-2950