Fyrsta dauðsfallið tengt apabóluveiru í Bandaríkjunum hefur verið staðfest af hálfu heilbrigðisyfirvalda í Texas í yfirlýsingu. Málið er til rannsóknar en ekki er vitað hversu veigamikinn þátt veiran hafi spilað í dauða sjúklingsins sem yfirvöld hafa sagt hafa verið með veikt ónæmiskerfi.
Fá dauðsföll hafa orðið af völdum veirunnar í heiminum og ekki er vitað um fleiri tilvik í Bandaríkjunum.