Volodimír Selenskí, forseti Úkraínu, hitti í dag eftirlitsteymi Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar (IAEA) fyrir komu fulltrúa stofnunarinnar að Saporisjía-kjarnorkuverinu sem Rússar hafa yfirráð yfir.
„Við viljum að IAEA-teymið nái til kjarnorkuversins og geri allt í sínu valdi til að forða okkur frá kjarnorkuhörmungum,“ sagði Selenskí. Auknar áhyggjur hafa verið uppi um hugsanlegt kjarnorkuslys vegna bardaga í nágrenni við kjarnorkuverið, sem er það stærsta í Evrópu.