Karl III verður formlega lýstur konungur Bretlands í St. James höll í London í dag. Athöfnin hófst klukkan níu á íslenskum tíma.
Yfirlýsing verður lesin af svölum hallarinnar klukkan tíu. Meðal viðstaddra eru sonur hans, Vilhjálmur, nýi prinsinn af Wales, og Kamilla drottning.