Gagnsókn Úkraínumanna í Kharkiv-héraði í Úkraínu miðar vel en Vitaly Ganchev sagði í samtali við rússneska alríkissjónvarpið að úkraínski herinn hafi náð völdum á þorpi í norðri. Fjöldi Úkraínumanna var um átta sinnum fleiri en tala Rússa að sögn Ganchev.
Úkraínski herinn segist hafa náð aftur yfirráðum yfir þrjú þúsund ferkílómetra landsvæði í norðri í Kharkiv héraði og að herinn hafi náð völdum yfir tuttugu þorpum síðastliðinn sólarhring. Þetta greinir BBC frá.
Dmity Peskov, talsmaður rússnesku ríkisstjórnarinnar, segir aftur á móti að aðgerðir rússneska hersins í Úkraínu muni halda áfram þar til upphaflegum markmiðum yrði náð.
Rússar segja að hersveitir þeirra herji nú á svæðum sem Úkraínumenn hafa endurheimt, þar á meðal Izyum og Kupiansk sem Úkraínumenn náðu völdum á laugardaginn. Valerii Marchenko, borgarstjóri Izyum, sagði í samtali við BBC að Úkraínu her væri í borginni og að fáni Úkraínu væri kominn á flaggstöng.