Volodimír Selenskí, forseti Úkraínu, tilkynnti rétt í þessu að fjöldagröf hafi fundist við Isíum. Úkraínuher frelsaði borgina undan valdi Rússa í leiftursókn sinni síðustu daga.
„Við viljum að heimurinn viti hvað rússneskt hernám hefur valdið,“ sagði Selenskí.
Að minnsta kosti 440 grafir hafa verið fundnar í skóginum við Isíum. Sergey Botvinov, lögregluþjónn í Isíum, sagði í viðtali við Sky að fórnarlömbin hafi látist í sprengjuárásum og skotárásum Rússa.