Fjöldi fólks hefur lagt leið sína í miðbæ London, höfuðborg Englands, til að tryggja sér stað til að fylgjast með útför Elísabetar 2. Bretadrottningar sem hefst klukkan 10 að íslenskum tíma í Westminster Abbey.
Stór hluti þeirra sem fjölmennt hafa miðborgina komu sér fyrir í nótt með svefnpoka og útilegustóla við árbakka Thames. Fréttamaður á vegum AFP náði tali af nokkrum þeirra sem biðu í miðbænum.
Bethany Beardmore, 26 ára endurskoðandi, segir útförina vera sögulega. Hún kom klukkan níu í gærkvöldi en náði ekki að sofa neitt í nótt þar sem hún hafði drukkið of mikið af kaffi með sykri.
„Á minni lífstíð verður ekki önnur drottning,“ sagði hún við fréttamanninn þegar þau spjölluðu saman.
Jamie Page, fyrrverandi hermaður, kom með lestinni klukkan fimm í morgun frá Horsham, sem er í suðurhluta London. „Hún var eins og gjöf frá guði,“ sagði hermaðurinn þegar hann minntist drottningarinnar.