Yfirlýsingu sem Vladimír Pútín Rússlandsforseti hugðist gefa út í kvöld hefur verið frestað.
Heimildir frá Kreml herma að yfirlýsingunni hafi verið frestað án útskýringa, en þetta kemur fram í umfjöllun BBC.
Ekki hefur komið fram hvers efnis yfirlýsing Rússlandsforsetans sé.
Greint var frá því fyrr í dag að efnt verði til atkvæðagreiðslu á hernumdum svæðum í fjórum héruðum í Úkraínu.
Gagnsóknir Úkraínu á umræddum svæðum hafa borið góðan árangur en hersveitir frá Kænugarði hafa endurheimt nokkur hundruð bæi og þorp sem Rússar höfðu áður á valdi sínu.