Yfirvöld í Tyrklandi fordæmdu í dag „ólögmæt“ áform um að efna til atkvæðagreiðslu á fjórum hernumdum svæðum Rússa í Úkraínu.
Í gær var sagt frá því að atkvæðagreiðsla verði haldin í Donetsk- og Lúghansk héruðum, sem og í Kerson og Saporísjía, um að þau verði hluti af Rússlandi.
Innlimun héraðanna í Rússland gæti haft afdrifaríkar afleiðingar þar sem Moskva gæti haldið því fram að verið sé að vernda eigið umdæmi fyrir úkraínskum hersveitum.
„Þessar ólögmætu aðgerðir verða ekki viðurkenndar alþjóðlega,“ sagði í yfirlýsingu frá tyrkneska utanríkisráðuneytinu.