Hitabeltisstormurinn Fíóna hefur valdið miklum usla í norðausturhluta Kanada en þúsundir heimila eru án rafmagns og hita og um 20 þeirra hafa fokið á haf út.
Hviðurnar hafa náð hraða sem nemur um 160 kílómetrum á klukkustund og tvær konur fuku á haf út eins og mbl.is greindi frá í gærkvöldi. Fréttamaður staddur á Nýfundnalandi segist aldrei hafa séð annað eins, þar sem hús stóðu eru nú rústir einar og heilu götumyndirnar horfnar.
„Þetta er án efa það ógnvænlegasta sem ég hef á ævi minni séð,“ er haft eftir Rene Roy á vef BBC. Þar lýsir hann því hvernig heilu fjölbýlishúsin hafi horfið í óveðrinu.
Justin Trudeau forsætisráðherra Kanada verður ekki viðstaddur útför fyrrverandi forsætisráðherra Japans, Shinzos Abes, vegna óveðursins. Hannn ætlar að vera í Kanada til að geta sinnt eftirmálum stormsins.
Trudeau hefur kallað út herlið til þess að aðstoða við björgunaraðgerðir í Nýja-Skotlandi:
„Ef það er eitthvað sem alríkisstjórnin getur gert til þess að aðstoða, þá verður það gert,“ er haft eftir forsætisráðherranum á vef BBC.
Viðvörun vegna hitabeltisstorms var gefin út fyrir Nýja-Skotland, Nýju-Brúnsvík, Nýfundnaland, Prince Edward-eyju og hluta Quebec.
Um 500.000 heimili eru án rafmagns og raforkuveitendur hafa varað fólk við því að það geti tekið fleiri daga að koma rafmagnsdreifikerfinu í samt lag eftir að storminn lægir.