Magnus Carlsen, heimsmeistari í skák, hefur lofað því að tjá sig „mjög fljótlega“ um skákina sem hann gaf Bandaríkjamanninum Hans Niemann eftir að hafa aðeins leikið einn leik. Þetta segir í frétt BBC.
Carlsen hefur hingað til ýjað að því að Niemann hafi svindlað á móti sér, en ekki sagt það hreint út.
Hann sagði í dag að hann myndi gefa út tilkynningu á næstu dögum.
Niemann, sem er 19 ára, hefur neitað því að hafa svindlað á keppnismóti í skák og hefur ásakað Carlsen um að reyna að eyðileggja skákferil sinn.