Ríkisstjóri Flórída, Ron DeSantis, hefur varað við mögulegum náttúruhamförum er fellibylurinn Ian sækir í sig veðrið á leið sinni yfir Karíbahafið.
Sterkir vindar bárust til suðurstrandar Kúbu í gærkvöldi. Búist er við að Ian nái alla leið til vesturstrandar Flórída einhvern tíma á fimmtudag.
Íbúar á svæðinu hafa verið að sanka að sér mat, vatni, lyfjum og bensíni. Þá hefur verið gripið til ýmissa varúðarráðstafana. Samkvæmt umfjöllun ABC er búið að rýma Tampa Bay-flugvöllinn.
TPA TO SUSPEND OPERATIONS: In preparation for Hurricane Ian, TPA will suspend all operations on Tuesday, September 27, at 5:00 p.m. The Airport will be closed to all visitors at that time. Read more: https://t.co/RbS1uKuXtf
— Tampa International Airport ✈️ (@FlyTPA) September 27, 2022
Lýst hefur verið yfir neyðarástandi á Flórída vegna fellibylsins. Landsmiðstöð fellibylja (e. The National Hurricane Center) hefur ráðlagt íbúum bæði á Kúbu og á Flórída að gera ýmsar ráðstafanir og fylgjast vel með fréttum.