Yfirvöld í Flórídaríki í Bandaríkjunum áætla að minnst fimmtíu manns hafi látið lífið vegna fellibylsins Ian sem gekk fyrst á land ríkisins á miðvikudag.
Miami Herald greinir frá.
Joe Biden Bandaríkjaforseti varaði við því á fimmtudaginn að fellibylurinn gæti orðið sá mannskæðasti í sögu ríkisins.
New York Times greinir frá því að staðfest andlát séu 23. Flestir hinna látnu drukknuðu og voru flest andlátin í Lee-sýslu, sem er sunnarlega á vestanverðum Flórídaskaganum.
Þeir látnu voru á aldrinum 22-92 ára, flestir sem létu lífið höfðu náð 60 ára aldri. Aldur þriggja einstaklinga er enn óljós.