Úkraínumenn hafa endurheimt öll völd í bænum Líman í Dónetsk-héraði í austurhluta Úkraínu en enginn rússneskur hermaður er nú þar sjáanlegur. Þetta tilkynnti Volodimír Selenskí forseti Úkraínu fyrr í dag.
Bærinn féll í hendur Rússa skömmu eftir að stríðið hófst í febrúar á þessu ári.
Í gær greindi úkraínski herinn frá því að búið væri að umkringja þúsundir rússneskra hermanna í bænum og síðdegis í gær voru Úkraínumenn komnir inn fyrir bæjarmörkin.
Varnarmálaráðuneyti Rússlands kvaðst sömuleiðis hafa dregið herlið sitt til baka úr bænum og að „hagstæðari varnarlínum.“
Vladimír Pútín Rússlandsforseti undirritaði á föstudag innlimun Dónetsk-héraðsins í Rússland. Alþjóðasamfélagið hefur fordæmt innlimunina og sagt hana ólöglega. Að ná Líman til baka er því mikið högg fyrir stríðsrekstur Pútíns.