Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, hefur tilkynnt um snemmbúnar þingkosningar í landinu 1. nóvember.
Þessu greindi hún frá á blaðamannafundi.
Frederiksen sagði að sósíaldemókratar ætli sér að mynda nýja ríkisstjórn byggða á breiðum grundvelli, að sögn DR.
„Það er kominn tími til að prófa nýja tegund ríkisstjórnar í Danmörku. Við erum tilbúin til samstarfs og málamiðlana,“ sagði hún.