Evrópusambandið hefur samþykkt nýjar refsiaðgerðir gegn Rússum eftir að stjórnvöld í landinu innlimuðu fjögur héruð í Úkraínu.
Þessi nýi pakki, sem er sá áttundi síðan Rússar réðust inn í Úkraínu í febrúar, fer í gegnum lokasamþykkt og ef enginn hreyfir mótmælum tekur hann gildi á morgun.
Ekki hefur verið gefið upp í hverju refsiaðgerðirnar felast, en á meðal þess sem rætt var um á fundum í vikunni var að setja verðþak á rússneska olíu sem er flutt víðsvegar um heiminn.
Einnig var rætt um að lengja listann yfir fólk á svörtum lista hvað varðar ferðabann innan ríkja ESB og frystingu eigna vegna stuðnings við innlimun héraðanna fjögurra.