Alexander Novak, varaforsætisráðherra Rússlands, sagði í sjónvarpsviðtali í dag að verðþak á olíu frá Rússlandi, sem Evrópusambandið hefur rætt um sem hluta af refsiaðgerðum vegna innrásarinnar í Úkraínu, myndi hafa skaðleg áhrif á alheimsmarkað með olíu.
„Svona tæki truflar allt gangverk markaðarins og getur haft skaðleg áhrif á olíuiðnaðinn um allan heim,“ sagði Novak samtali við rússneskja ríkissjónvarpið eftir að greint hafði verið frá því einblínt hefði verið á verðþak á alla olíu frá Rússlandi sem hluta af refsiaðgerðunum sem ákveðnar voru í dag.
Ekki hefur þó enn verið gefið upp í hverju refsiaðgerðirnar felast. Þær eiga eftir að fara í gegnum lokasamþykkt en ef enginn hreyfir mótmælum taka þær gildi á morgun.
Novak sagði jafnframt að Rússar myndu ekki flytja olíu til þeirra landa sem settu slíkt verðþak á.