Bandaríski stórmeistarinn í skák, Hans Niemann, segist ekki ætla að „láta deigan síga“ eftir að forsvarsmenn Chess.com sögðu að hann hefði „líklega svindlað meira en 100 sinnum“ í skákum á netinu.
Norski heimsmeistarinn Magnus Carlsen hefur sakað Niemann um svindl.
Hinn 19 ára Niemann, sem hefur tekið ótrúlegum framförum á undanförnum misserum, neitar alfarið öllum ásökunum.
Eftir sigur á meistaramóti í Bandaríkjunum í gær sagði hann að skákin sem hann hefði nýlega unnið „talaði fyrir sig sjálfa og sýndi hvernig skákmaður ég er“.
Hann bætti við: „Hún sýndi einnig að ég ætla ekki að láta deigan síga og ég ætla að spila minn besta leik hér þrátt fyrir pressuna sem er á mér.“