Antonio Guterres, aðalritari Sameinuðu þjóðanna, sendi handhöfum friðarverðlauna Nóbels hamingjuóskir og kallaði jafnframt eftir því að heimurinn myndi styðja við þá hugrökku sem vernda alþjóðleg gildi friðar, vonar og reisnar fyrir alla, sérstaklega núna á tímum stríðsátaka.
Í morgun tilkynnti Berit Reiss-Andersen, formaður Nóbelsnefndarinnar í Ósló, þá sem hljóta friðarverðlaun Nóbels í ár. Það voru hvítrússneski mannréttindafrömuðurinn Ales Bíaljatskí, rússnesku mannréttindasamtökin Memorial og úkraínsku mannréttindasamtökin Miðstöð borgaralegs frelsis (CGS), sem hlutu þau.
Guterres lýsti vinningshöfunum sem súrefni lýðræðisins og hvata til friðar og félagslegra framfara. Sagði hann þá stuðla að því að ríkisstjórnir væru dregnar til ábyrgðar og að hinir valdalausu fái rödd.