Aðgerðir við að flytja á brott almenna borgara frá borginni Kerson í Úkraínu eru hafnar, samkvæmt upplýsingum frá embættismönnum í héraðinu sem eru hliðhollir Rússum.
Borgin er í suðurhluta Úkraínu við Dnípró-ána. Í myndskeiði sem birt var á rússnesku sjónvarpsstöðinni Russia 24 má sjá íbúa bíða í röðum eftir því að vera fluttir yfir ána í ferju.
Yfirvöld í borginni, sem Rússar skipuðu, áforma að flytja á bilinu 50 til 60 þúsund yfir ána en áætlað er að brottflutningurinn taki um sex daga. Talið er að flytja eigi íbúana til Rússlands.
Kerson var fyrsta stórborgin til að falla í hendur Rússa snemma í stríðinu og er Kerson-héraðið jafnframt eitt þeirra fjögurra héraða sem rússnesk stjórnvöld innlimuðu ólöglega í síðasta mánuði.
Gagnárás hersveita Úkraínu hefur þó gengið vel og hafa þær endurheimt landsvæði í grennd við borgina á síðustu vikum.
Yfirmenn í rússneska hernum hafa sagt ástandið í Kerson erfitt og að úkraínski herinn væri að undirbúa árás á borgina.
Rússneski miðillinn RIA Novosti greindi frá því að íbúar hefðu fengið sms þar sem þeir voru hvattir til að rýma áður en úkraínski herinn myndi hefja sprengjuárásir.