Sunak býður sig fram

Rishi Sunak yfirgefur heimili sitt í gær.
Rishi Sunak yfirgefur heimili sitt í gær. AFP/Daniel Leal

Rishi Sunak, fyrrverandi fjármálaráðherra Bretlands, ætlar að bjóða sig fram til formennsku í Íhaldsflokknum og þar með sem næsti forsætisráðherra Bretlands.

„Bretland er frábært land en við eigum við djúpa efnahagslega erfiðleika að stríða,“ tísti hann á Twitter.

Um leið staðfesti hann framboð sitt, sem margir höfðu þegar reiknað með. „Mig langar að lagfæra efnahaginn, sameina flokkinn okkar og leggja mitt af mörkum í þágu þjóðarinnar.“

Liz Truss sagði af sér embætti forsætisráðherra Bretlands í síðustu viku. Penny Mor­daunt, fyrr­ver­andi viðskiptaráðherra og fyrr­ver­andi varn­ar­málaráðherra Bret­lands og þingmaður Íhalds­flokks­ins, gaf í framhaldinu kost á sér sem næsti leiðtogi flokksins.

Vangaveltur hafa verið uppi um hvort Boris Johnson, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands, ætlar einnig að bjóða sig fram. Hann fundaði með Sunak í gærkvöldi og fram á nótt. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka