Truss óskaði Sunak góðs gengis

Liz Truss fyrir framan Downingstræti 10 í morgun.
Liz Truss fyrir framan Downingstræti 10 í morgun. AFP/Daniel Leal

Liz Truss, fráfarandi forsætisráðherra Bretlands, óskaði arftaka sínum í embætti, Rishi Sunak, góðs gengis í ræðu sem hún hélt fyrir framan Downingstræti 10 í morgun. 

„Við höldum áfram að berjast í gegnum óveðrið en ég hef trú á Bretlandi, ég trúi á breskan almenning og ég veit að bjartari tímar eru framundan,” sagði hún áður en hún hélt til Buckingham-hallar til að segja formlega af sér embætti.

Rishi Sunak er kominn til Buckhingham-hallar þar sem Karl konungur mun skipa hann næsta forsætisráðherra Bretlands, að sögn BBC. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert