Imran Khan, fyrrverandi forsætisráðherra Pakistans, særðist í skotárás á mótmælafundi sem fór fram í borginni Lahore í austurhluta Pakistans í dag. Talið er að um banatilræði hafi verið að ræða.
Félagar í PTI, flokks Khans, segir að fjórir til viðbótar hafi særst í árásinni. Enginn lést aftur á móti.
Fram kemur í umfjöllun breska útvarpsins, að ekki liggur fyrir hvort Khan hafði særst á handlegg eða fótlegg. Hann er þó ekki lífshættulega særður.
Khan, sem er sjötugur, fór fyrir mótmælagöngu í dag, en hann hefur krafist þess að boðað verði til kosninga í landinu sem fyrst.
Hátt settur aðstoðarmaður hans sagði í samtali við AFP að þetta hafi verið morðtilræði.