Fyrsti dauðadómurinn sem tengist mótmælunum

Hörð mót­mæli gegn klerka­stjórn­inni í Íran hafa geisað í land­inu …
Hörð mót­mæli gegn klerka­stjórn­inni í Íran hafa geisað í land­inu eft­ir dauða hinn­ar 22 ára gömlu Mahsa Am­ini. AFP/Armend Nimani

Íransk­ir dóms­stól­ar hafa dæmt ein­stak­ling til dauða fyr­ir að hafa meðal ann­ars kveikt í op­in­berri bygg­ingu og fyr­ir sam­særi um að fremja glæp gegn þjóðarör­yggi.

Glæp­ur hins sak­fellda teng­ist þátt­töku hans í mót­mæl­un­um sem geisað hafa í land­inu síðustu mánuði. Um er að ræða fyrsta dauðadóm­inn sem teng­ist þátt­töku í mót­mæl­un­um.

Hörð mót­mæli gegn klerka­stjórn­inni hafa geisað í land­inu eft­ir dauða hinn­ar 22 ára gömlu Mahsa Am­ini. Hún lét lífið þrem­ur dög­um eft­ir að hún var hand­tek­in af hinni al­ræmdu siðgæðis­lög­reglu fyr­ir að brjóta íslamsk­ar regl­ur um klæðaburð kvenna.

mbl.is
Fleira áhugavert

Erlent »

Fleira áhugavert