Meina konum aðgang að líkamsræktarstöðvum

Réttindi kvenna hafa markvisst verið skert síðan talíbanar tóku við …
Réttindi kvenna hafa markvisst verið skert síðan talíbanar tóku við völdum. AFP/Wakil Kohsar

Af­gönsk­um kon­um er nú meinaður aðgang­ur að lík­ams­rækt­ar­stöðvum og mega þær ekki baða sig á al­menn­ings­stöðum, eins og sund­laug­um. Þetta bann talíbana kem­ur nokkr­um dög­um eft­ir að þeir bönnuðu kon­um aðgang að al­menn­ings- og skemmtigörðum.

Síðan að talíban­ar komust til valda í Af­gan­ist­an í fyrra hafa þeir mark­visst skert rétt­indi kvenna. Stúlk­um hef­ur til að mynda verið meinuð skóla­ganga á miðstigi og kon­ur fá ekki að sinna op­in­ber­um störf­um.

Auk þess hef­ur kon­um verið bannað að ferðast um ein­ar síns liðs og þurfa þær að hylja and­lit sitt að fullu á al­manna­færi.

mbl.is
Fleira áhugavert

Erlent »

Fleira áhugavert