Fundur G20-ríkjanna, tuttugu helstu iðnríkja heims, er hafinn á indónesísku eyjunni Balí.
Volodimír Selenskí, forseti Úkraínu, árvarpaði samkomuna í nótt í gegnum fjarfundarbúnað.
Fréttastofa AFP greinir frá því að Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, sem sækir fundinn í stað Vladimírs Pútíns, forseta Rússlands, hafi verið viðstaddur ávarp Selenskís.
Vincent Piket, sendiherra Evrópusambandsins gagnvart Indónesíu, tísti myndum frá ávarpinu.
Ukraine President Zelensky addressing the G20 summit in Bali. Impassioned yet detailed speech calling for the restoration of peace in and respect for the UN Charter, the principle of territorial integrity in Ukraine. pic.twitter.com/fxsXIpsuKV
— Vincent Piket (@DubesUniEropa) November 15, 2022
Selenskí sagði meðal annars í ávarpi sínu að núna væri tíminn þar sem hægt væri, og rétt væri að stöðvar stríðsrekstur Rússa. „Það mun bjarga þúsundum mannslífa,“ sagði hann.