Stjórnvöld í Bandaríkjunum hafa veitt krónprinsi Sádi Arabíu, Mohammed bin Salman, friðhelgi vegna morðsins á blaðamanninum Jamal Khashoggi.
Unnusta hans hefur lögsótt krónprinsinn sem talinn er, meðal annars af leyniþjónustu Bandaríkjanna, hafa fyrirskipað aftökuna í sendiráði Sádi Arabíu í Tyrklandi árið 2018.
Dómstólar í Bandaríkjunum hafa þó kveðið á um að þar sem Bin Salman sé í raun þjóðhöfðingi og sinni störfum forsætisráðherra, njóti hann friðhelgi.
Unnusta Khashoggis heitins, Hatice Cengiz, skrifaði færslu á Twitter í tilefni fréttanna í dag með orðunum: „Jamal dó aftur í dag“
Jamal died again today #injustice #JamalKhashoggi
— Hatice Cengiz خديجة (@mercan_resifi) November 18, 2022
Hún, ásamt mannréttindasamtökunum Democracy for the Arab World Now (Dawn), sem að Khashoggi stofnaði á sínum tíma, hafa sem áður segir lögsótt krónprinsinn og reynt að sækja bætur til hans vegna morðsins.
Í dómsskjölum lögsóknarinnar eru prinsinn og vitorðsmenn hans sagðir hafa rænt, bundið, byrlað ólyfjan, pyntað og að lokum myrt bandaríska ríkisborgarann Jamal Khashoggi.